Brot.
Óþekktur skrifari.
Sumt er skrifað með rauðu bleki.
Á seðli Árna Magnússonar er uppskrift hans á íslenska textanum um uppruna handritsins.
Á öðrum seðli Árna Magnússonar eru upplýsingar um feril: Þetta pergamentsblað eignaðist ég A.M. annó 1715 í Kaupmannahöfn af Þorsteini Sigurðssyni, sýslumanni í Múlasýslu. Hann hafði það fengið hjá almúgabónda einum í Eyjafirði, og hafði sá ekkert meira af bókinni en þetta einstaka blað. Sagðist sá og ekki muna rétt af hverjum það fengið hefði. Hefði svo til sín flækst frá einhverjum öðrum. Er óefað komið í fyrstu frá Munkaþverá og mun bókin sjálf eyðilögð vera.
Handritið var skrifað á Íslandi 1473.
Á blaðinu stendur á íslensku að handritið hafi verið gert fyrir jómfrú Maríu á Munkaþverá.
Sjá seðil Árna Magnússonar.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 1. mars 1993.
GI skráði 19. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 382-383.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.