Eftirrit Bessastaðabókar nr. 142 (sjá athugasemd Árna Magnússonar á kápu). Lausavísa á neðri spássíu blaðs 6r.
Fremstu og öftustu síðurnar slitnar og skítugar.
Spássíugreinar víða.
Band frá ágúst 1963.
Fastur seðill (175 mm x 142 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þetta innlagt sendi mér síra Þorvaldur Stefánsson til Kaupenhafn 1709 ásamt nokkrum kálfskinnsbréfum frá Njarðvík. Mun vera þaðan, þó er það óvíst. Er úr Bessastaðabók núm[er] 142 út kópíerað.“
Handritið er tímasett til upphafs 17. aldar í Katalog II , bls. 370.
Sr. Þorvaldur Stefánsson sendi Árna Magnússyni handritið til Kaupmannahafnar árið 1709.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. maí 1975.
Tekið eftir Katalog II , bls. 370 (nr. 2267). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. nóvember 1889. ÞS skráði 25. janúar 2002 og bætti við skráningu 15. júlí 2020.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1963. Eldra band fylgdi ekki.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.