„Hinn nyi kristinns doms riettur þann er herra Jon Erki biskup saman sette og logtekinn er vmm Skalholtz biskups dæme“
„Hér byrjar upp hinn Nýji Kristindómsréttur þann er ...“
M.a. Sættargerð Magnús konungs og Jóns erkibiskups.
Pappír með vatnsmerkjum.
Rektósíður blaðmerktar 1-51, með svörtu bleki.
Sjö kver:
Með hendi Eggerts Jónssonar, kansellískrift í fyrirsögnum er skreytt. Í meginmáli eru áhrif frá árfljótaskrift.
Fyrsti upphafsstafur (H) er yfir 4 línur og er skreyttur með tvöföldum línum með minni línum á milli. Aðrir upphafsstafir eru venjulega um 1-2 línur (stundum 3-4) og með pennaflúri.
Fyrirsagnir eru skrifaðar með skrautlegri útgáfu af kansellískrift.
Griporð eru skrifuð með fljótaskrift og penna- og stafaflúruð vinstra megin og fyrir neðan.
Lok texta er skrifað í formi hálfs tíguls.
Við lok texta er ígildi bókahnútar sem svipar til nútíma @-merki.
Nótnaskrift á bókfelli í bandi.
Band frá júní 1980.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótnaskrift.
Skrifað á Íslandi, með hendi Eggerts Jónssonar á Ökrum og tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 360.
Var áður hluti af stærra handriti.
Handritið er tekið úr bók sem Árni Magnússon fékk hjá Skapta Jósefssyni árið 1712.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1980.
Viðgert og bundið á verkstæði Birgitte Dall í júní 1980. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.