Á bl. 29v eru lagaformálar fyrir setningu héraðsþinga og þingslit Erlendar Þorvarðarsonar lögmanns fyrir sunnan og austan á Íslandi. Á bl. 30r eru útreikningar um nytjar af fjöru Þykkvabæjar í Landbroti og Dalbæjar og formúlur fyrir kyrrsetningu. Neðri hluti bl. 29r og bl. 30 upprunalega auð.
Stór skreyttur upphafsstafur með dreka og dýramyndum.
Á bl. 10r, 21r og 27r eru teikningar af mannshöfðum á spássíu.
Leifar af rauðum upphafsstöfum og fyrirsögnum.
Á bl. 24v er skrifað tvisvar með óæfðri hendi: Þodu magnuſſon heu lesit a þeſſa bok.
Band frá því í desember 1977.
Bl. 1r-29r eru tímasett um 1500 en bl. 29v c1521-1552 (sjá ONPRegistre , bls. 465, og Katalog II , bls. 359).
Bl. 30r er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 359.
Árni Magnússon fékk handritið hjá sr. Torfa Halldórssyni á Vindási en hann hafði fengið hjá Ólafi Ólafssyni í Hvammi í Kjós.
Árið 1664 átti handritið Valgerður Ólafsdóttir, en Vigfús Guðmundsson e.t.v. síðar (bl. 29r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. apríl 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 359 (nr. 2250). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1909. ÞS skráði 15. janúar 2002.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir og lýsing Jóns Sigurðssonar á innihaldi innfest í kápu.