„Drottinn gef þú að dikturinn mætur …“
„göfga þar með gl-“
Vantar aftan af.
Samkvæmt lýsingu frá c1876 var þá einnig undir númerinu 720: 1 skinnblað með broti af Lilju (um 10 erindum) og 2 skinnblöð með broti af Guðspjallavísum (sjá Katalog (II) 1894:148 ). Samkvæmt athugagrein Árna Magnússonar, á umslagi sem fylgdi þessum brotum, voru þau úr skinnbók frá c1580-1590, sem Árni fékk frá Magnúsi Markússyni, rektor í Skálholti. Í henni voru einnig Píslargrátur, Heim vil eg heimskan telja, Hugbót, Hjónasinna og Ein ný vísa af VII höfuðsyndum (Herra Jesús hjálpin mín). Árni segir bókina liðna undir lok, utan eins blaðs sem hann hafi geymt til sýnis (sjá Katalog (II) 1894:148 og Biskupa sögur (II) 1878:509 ).
Einungis skrifað á versósíður.
Engir seðlar með hendi Árna Magnússonar.
Tímasett til upphafs 18. aldar ( Katalog (II) 1894:148 ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1983.
Tekið eftir Katalog (II) 1894:148-149 (nr. 1817) . Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 29. október 2003.