Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 720 a I 1-2 4to

Helgikvæði ; Ísland, 1300-1510

Athugasemd
Samsett úr tveimur handritum.

Innihald

Lýsing á handriti

Band

Band frá ágúst 1967 (244 mm x 249 mm). Pappakápa með línkili. Skinnblaðið er límt á móttak, en uppskrift Árna Magnússonar er saumuð á móttak. Handritin liggja í öskju með öðrum handritum í AM 720 a I-XI 4to.

Fylgigögn
Tveir seðlar (tveir fremst við 720 a I, hinn fremst við 720 a II)
  • Seðill 1fremst við AM 720 a I 4to fyrsti seðillinn, merktur "a" (205 mm x 162 mm) er fyrsta blað tvinns, en hið aftara er autt.

    Herra konungur Ólafur hjálpari Noregs landa, / þér kom til handa / með helgum anda / eilíf náð fyrir Jesúm Krist; / heiður þinn mun um heiminn norður standa, / þú komst oss bæði úr kvölum og vanda, / kendir trú krafta og list; / musteri klén [?] / þú vígðir væn, / villu krotin en miskunn sem, / þú það lén / af guði igen, / herradæmi og himnavist. / Herra kóng Ólaf huggari má þig kalla, þú lést falla / forna stalla, / braust þú í sundur bolund hofi [?] / refsa æðstu rán og stuldi alla, / réttum dómi vildir eigi kalla, / og efldir þannig Jesú lofi; / logi kom rauður, / en uppgekk auður, / jafnan dóm fékk ríkur og snauður, / þann lá dauður / er þess var [trauður] / lýðum þótti ógnin víð [?] of. / Herra kóng Ólaf hvar komu laun á móti, / þú eyddir blóti / með öxi og spjóti, / boðaðir öllum rétta trú; / þegnar landsins þola með engu hóti, / af því gjörðist kurrinn ljóti, / ríkisfólkið reiðist nú; / heyr og sé / hvað fart kann ske, [heldur áfram á öðrum seðli]

  • Seðill 2 fremst við AM 720 a I 4to fyrsti seðillinn, merktur "b" (205 mm x 162 mm) er fyrsta blað tvinns, en hið aftara er autt. Þeir seldu þig fyrir mútur og fé, / fals og vé / kom fólki á kné, / aumlega keypti öldin sú. / Herra kóng Ólaf heimurinn má þín njóta. Þú varðst að hljóta / virðing skjóta, / veturna fimm og fullan tog [?]; / allir gjörðu fjendur [?] upp að þjóta, / þér í gegn báða hoöggva og skjóta, / fengu þínu fólki slog; / á Stiklastöðum sem stendur skrif / med stáli klauf þú búna hlíf, / gekk þú í kíf, / og gaf þitt líf, fyrir þau dýru drottins lög. / Herra kóng Ólaf hjartanlega má skýra / dauða hins dýra / Haraldar hlýra, ljósið yfir hans líkama skein; / böndin þann sem … / … ... …

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS jók við samkvæmt reglum TEI P5 3. júní 2009 og síðar.

GI skráði 20. október 2003.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 15. október 1888 (sjá  Katalog II 1894:144-147 ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1967.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Hluti I ~ AM 720 a I 1 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-v)
Lauda syon salvatorem
Athugasemd

Brot úr kaþólskri messusöngsbók.

Sekvensía úr messusöng á þeim hátíðisdegi kirkjunnar sem á Íslandi var nefndur Dýridagur (festum sanctissimi corporis Christi). Erik Eggen prentaði texta sekvensíunnar, en notaði ekki þetta handrit ( Bibliotheca ArnamagnæanaXXI, 1968s. 121-123).

Efnisorð
1.1 (1r)
Enginn titill
Upphaf

… Sumit unus sumunt mille …

Niðurlag

… signi tantum fit fractura …

Athugasemd

Textinn hefst í miðju 7. erindi og nær fram í síðari hluta 9. erindis.

1.2 (1v)
Enginn titill
Upphaf

… vales …

Niðurlag

… sanctorum fac civium.

Athugasemd

11 erindi, niðurlag sekvensíunnar.

2 (1v)
Ólafsvísur
Upphaf

Herra kóng Ólaf hjálpari Noregs landa …

Niðurlag

… bóndinn þann sem …

Athugasemd

Brot, vantar aftan af, enda í 6. erindi.

Notað í lesbrigðaskrá neðanmáls í  Íslenzk miðaldakvæði, 1938IIs. 444-459.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
1 blað (179 mm x 231 mm). Blaðið hefur upphaflega verið fólíóblað, en skorið hefur verið ofan af því, e.t.v. um það leyti sem Ólafsvísur voru skrifaðar (Íslenzk miðaldakvæði II 1938:445).
Kveraskipan

Stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 117 mm x 188 mm(1v).
  • Línufjöldi er 5 (1r) og 15 (1v).

Ástand

  • Fáein saumgöt eru á blaðinu sem skerða texta óverulega.
  • Merki um fúa sjást á blaðinu.
  • Af saumgötum og brotum í blaðinu má sjá að það hefur einhvern tíma verið notað í band.

Skrifarar og skrift
Tvær hendur.

I. 1r-v: Óþekktur skrifari, textaskrift.

II. 1v: Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Nótur

Nótur (ferningsnótnaletur).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíugreinar:
  • Bl. 1r: I, sem tákn um að handritið sé fyrsti hluti í AM 720 a I-XI.
  • Bl. 1v, með hendi Árna Magnússonar: Úr latínskri messusöngsbók. Blaðið er komið frá Íslandi.
  • Bl. 1v, með hendi Árna Magnússonar: reliqva decrant.
  • Bl. 1v: eldra pennakrot, stök orð.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifarð á Íslandi. Ólafsvísur eru skrifaðar um 1500 ( Katalog II 1894:144 ). Latneska messusöngsbókin er á hinn bóginn e.t.v. frá 14. öld.

Ferill

Árni Magnússon fékk blaðið frá Íslandi (sbr. 1v).

Aðrar upplýsingar

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Hluti II ~ AM 720 a I 2 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-2v)
Ólafsvísur
Upphaf

Herra kóng Ólaf hjálpari Noregs landa …

Niðurlag

… bóndinn þann sem …

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
4 blöð (209 mm x 162 mm). Auð blöð: 3 og 4.
Tölusetning blaða

Seinni tíma blýantsblaðmerking a-b (1r-2r).

Kveraskipan

Eitt kver (4 blöð, 1 tvinn).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 151/163/158 mm x 131/125/126 mm.
  • Línufjöldi er 17-18.
  • Griporð á 1v.

Ástand

Á 3r hefur blek smitast í gegn af síðunum á undan.

Skrifarar og skrift

Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi á árunum 1685-1728.

Aðrar upplýsingar

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Titill: DFS 67,
Umfang: s. 233-267
Höfundur: Eggen, Erik
Titill: , The Sequences of the Archbishopric of Nidarós I: Text
Umfang: XXI
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Íslenzk miðaldakvæði: Islandske digte fra senmiddelalderen
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: II
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 720 a I 1-2 4to
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn