Skráningarfærsla handrits

AM 716 m 4to

Vísur um Jón Arason og syni hans

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-9r)
Vísur um Jón Arason og syni hans
Titill í handriti

Vïſur umm þä Biſkup Ion Araſon og | Syne hans, ſem qvad Olafur Thomaſſon, | Syſturſon þeirra Biſkupſſona, ad mödurenne

Athugasemd

Vantar innan úr kvæðinu.

Bl. 5v-8r, 9v-10r skilin eftir auð til að tákna eyðu í texta.

Skrifað eftir skinnbók frá sr. Magnúsi Markússyni (bl. 11r).

2 (11r-12v)
Guðspjallavísur
Upphaf

Bỏrn þau er brioſtinn girnaſt …

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
12 blöð.
Umbrot

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Árni Magnússon leiðréttir síðustu vísurnar og skrifar efst á bl. 11r: Ex membranâ Recenti Magnusar Markuſſonar.

Band

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog II , bls. 137.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. nóvember 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 137 (nr. 1796). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 27. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Einar Sigurðsson í Eydölum, Jón Samsonarson, Kristján Eiríksson
Titill: , Ljóðmæli
Umfang: 68
Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn