„María ertu mild og skær …“
Skrifað eftir kálfskinnsbók frá sr. Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sjá saurblað).
Einungis skrifað á versó-síður.
Ein hönd.
Fastur seðill (204 mm x 158 mm): „Þessi Pétursdiktur (Maríuvísur) er uppskrifaður úr þeim rotnu kálfskinnsblöðum in 4to frá síra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.“
Með hendi Árna Magnússonar og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 134.
Samkvæmt AM 477 fol. voru í AM 715 4to einnig annað eintak af Píslargráti með hendi Árna Magnússonar og Ljómur Jóns Arasonar með hendi Jóns Ólafssonar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. maí 1983.
Tekið eftir Katalog II , bls. 134 (nr. 1783). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 25. september 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.