Blaðmerkt á neðri spássíu 125r-133v.
Blaðmerkt á flestum efri rektósíðum 1-9.
Eitt kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, sprettskrift.
Sama hönd og í AM 615 f-m 4to, nema síðasta blað í AM 615 k 4to.
Upphafsstafir stundum dregnir örlítið stærra.
Band frá c1772-1780 (210 mm x 167 mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með bleki. Á spjaldblöðum prentað mál. Tveir límmiðar á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi, og tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 27.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í þessu handriti Rímur af Sigurði Fornasyni með settaskriftarhendi Jóns Sigurðssonar, en eru þar ekki lengur.
Handritin AM 615 f-m 4to voru áður saman í einni bók (sjá athugasemd Jóns Ólafssonar úr Grunnavík á bl. 1r í AM 615 f 4to.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. apríl 1983.
Viðgert í Kaupmannahöfn 1964.