„... seggurinn mællte ...“
Brot. Hefst í 13. rímu:
18 rímur. Niðurlag 15. rímu og upphaf 16. vantar.
Á rektósíðu er blaðsíðumerking með svörtu bleki og einnig blýanti 1-14, síðari tíma viðbót.
Tvö kver:
Óþekktur skrifari. Sama hönd og í AM 613 f 4to.
Upphafsstafir blekdregnir skrautstafir.
Fyrirsagnir og fyrsta lína dregin stærri, jafnvel kansellískrift.
Á neðri spássíu á bl. 6v, síðara tíma hönd hefur skrifað „vantar!“
Band frá c1772-1780 (202 mm x 161 mm x 3 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír, með prentað mál á spjaldblöðum. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með svörtu bleki. Tveir límmiðar eru á kili.
Skrifað á Íslandi.
Sama hönd og á AM 613 f 4to, en handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 12. Það var upprunalega hluti af stærra handriti, ásamt AM 613 f 4to.
Tekið úr bók frá sr. Þorkeli Oddssyni í Gaulverjabæ (sjá seðil með AM 613 f 4to).
Þorkell erfði handritið frá föður sínum Oddi Eyjólfssyni hinum eldra. Áður hafði það tilheyrt Einari Eyjólfssyni, og eftir lát hans komst handritið í hendur Odds sem giftist ekkju Einars. Oddur lánaði síðan handritið til ættingja síns, Páls Oddssonar. Hast 1960: 2, 151-152.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. mars 1983.
Gert við í Kaupmannahöfn 1964.