„Hier Epter Skrifaſt Rymur af | pontus sem pietur Eynarſson | hefur queded“
Ófullgerðar.
Sömu rímur og í AM 613 e 4to en merktar I-XVI. Vantar aftan af síðustu rímunni. Bl. 48v upprunalega autt.
Rektósíður blaðsíðumerktar 1-95 með svörtu bleki eða blýanti, síðari tíma viðbót.
6 kver:
Óþekktur skrifari, fljótaskrift. Sama hönd og í AM 613 g 4to.
Upphafsstafir blekdregnir skrautstafir, 1-3 línur.
Fyrirsagnir og fyrsta lína dregin stærri, jafnvel kansellískrift.
Ýmiss konar krot á bl. 48v.
Band frá c1772-1780 (198 mm x 161 mm x 10 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír, með prentað mál á spjaldblöðum. Titill og safnmark („613.“) skrifað framan á kápu með svörtu bleki. Síðar hefur „f“ verið bætt við safnmarkið. Tveir límmiðar eru á kili.
Fastur seðill (67 mm x 137 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Pontus Rimur 16. Petrs Einars sonar. fragment Kollantz Rimna. ur bok fra sira Þorkele Oddz syne i Gaulveriabæ.“
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 21. Það var upprunalega hluti af stærra handriti, ásamt AM 613 g 4to.
Tekið úr bók frá sr. Þorkeli Oddssyni í Gaulverjabæ (sjá seðil) sem Árni Magnússon fékk lánaða.
Þorkell erfði handritið frá föður sínum Oddi Eyjólfssyni hinum eldra. Áður hafði það tilheyrt Einari Eyjólfssyni, og eftir lát hans komst handritið í hendur Odds sem giftist ekkju Einars. Oddur lánaði síðan handritið til ættingja síns, Páls Oddssonar. Hast 1960: 2, 151-152.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1983.
Viðgert í Kaupmannahöfn 1964.