„Rymur af Amicus og Amilius“
Tólf rímur. Aftan við rímurnar hefur skrifarinn bætt við: Þeſsar Rymur miog Afbakadar, J ſkrifelſenu | nu nockud vid riettar.
Handritið er tímasett til um 1700 í Katalog II , bls. 14.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 609 4to Rímur af Appollóníusi Björns Jónssonar á Skarðsá, Blómsturvallarímur (eða af Ákasonum) Jóns Eggertssonar og Callinus rímur, sem eru þar ekki lengur.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. janúar 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 14 (nr. 1550). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 31. ágúst 2001.