Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 602 d 4to

Brjáns saga

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-5v)
Brjáns saga
Titill í handriti

Brjáms saga

Upphaf

Það var einu sinni að kóngur og drottning réðu fyrir ríki sínu …

Niðurlag

… og ekki kann eg þessa sögu lengri.

Notaskrá

Sagan er prentuð eftir þessu handriti í Íslenzkum þjóðsögum II, s. 505-508.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír. Vatnsmerki á bl. 6.
Blaðfjöldi
6 blöð (208-210 mm x 162-164 mm). Bl. 6 autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerkt 1-5 með rauðu bleki, líklega af Kålund.

Kveraskipan

Tvö kver (bl. 1–4, 2 tvinn og bl. 5-6, tvinn).

Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er ca 160-163 mm x 140 mm.

Línufjöldi ca 18-20.

Ástand

Strikað undir orð og setningar með blýanti.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á eftir sögunni stendur með hendi Árna Magnússonar: Þessi skröksaga er uppskrifuð eftir Hildi Arngrímsdóttur í Hvammi Anno 1707.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (210 mm x 169 mm x 4 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað árið 1707, sjá viðbætur Árna Magnússonar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. desember 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 771 (nr. 1525). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. febrúar 1888. ÞS skráði 29. ágúst 2001; endurskráði samkvæmt reglum TEIP5 25.-26. september 2017.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Umfang: 6
Höfundur: Hermann Pálsson, Páll Bjarnason
Titill: Ambáles rímur, Rit Rímnafélagsins
Umfang: 5
Titill: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Árnason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Brjáns saga

Lýsigögn