„Sagan af Clarus keisarasyni“
Í AM 181 d fol., AM 181 e fol eru uppskriftir Clarus sögu eftir þessu handriti ( Loth 1977:15-16 ).
„Hér byrjum vær upp eina frásögu …“
„… tign á Saxlandi og unnust þau mest“
og lýkst hér saga Clarus keisara og Serenu drottningar.
Sex fyrstu línurnar eru í AM 589 c 4to (bl. 8v). Árni Magnússon hefur skrifað þær upp á innskotsblað sem er hér bl. 1.
Í AM 181 d fol., AM 181 e fol og AM 585 a 4to eru uppskriftir Ectors sögu eftir þessu handriti ( Loth 1977:15-16 ).
„[Þ]eir menn er mest stunda á jarðlega speki …“
„… höndin mæðist og bila öll ritfæri.“
„Hafi sá þökk er skrifað hefur og sá er las og þeir er til hlýddu.“
Óheil, blað vantar á eftir bl. 36, en Árni Magnússon rekur efni þess á seðli.
Sagan hefst hér á inngangskafla, línu 1-10, sem er ekki í öðrum aðalhandritum hennar ( Opuscula IV 1970:363-365 ).
„Af Stúfi kattarsyni“
„… Stúfur var mikill maður og sjónfríður …“
„… en Stúfur fór sinna erinda og leið eigi [langt] …“
Íslenzk fornrit V 1934.
Lengri gerðin, vantar aftan af.
Fyrsta línan er ólæsileg.
Sex kver og átta stök blöð.
Með óþekktri hendi, textaskrift. Sami skrifari og fyrsta hönd í AM 586 4to.
Leifar af upphafsstöfum og fyrirsögnum.
Band frá ágúst 1966 (209 mm x 185 mm x 35 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Leður á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band frá ca 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til seinni hluta 15. aldar ( Björn M. Olsen 1912:viii , Loth 1977:19 ). Kålund tímasetti til 15. aldar en innskotsblaðið til c1700 ( Katalog I 1889:755 ).
Upprunalega hluti af stærra handriti sem innihélt AM 589 a-f 4to.
Árni Magnússon fékk AM 589 a-f 4to frá Birni Þorleifssyni, síðar biskupi á Hólum.
Nöfn í handritinu: Sr. Jón Sigmundsson á Kjalarnesi (sbr. spássíugreinar), Hannes Ólafsson (24r), Jón Ívarsson (35r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. desember 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1966. Í öskju. Eldra band fylgir.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.