Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 564 d 4to

Þórðar saga hreðu ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-16v)
Þórðar saga hreðu
Titill í handriti

Sagan af Þórði hreðu

Upphaf

Þórður hét maður, Hörða-Kárason …

Niðurlag

… af hans frægðarverkum heyrt né spurt.

Baktitill

Og endum vér nú svo hér með hans ævisögu.

Athugasemd

Á bl. 1r er niðurlag annarrar sögu útkrassað.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 16 blöð (196 mm x 157 mm).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, bl. 1-2 og 4 með blýanti og bl. 3-16 með rauðu bleki.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: bl. 1-2, tvinn.
  • Kver II: bl. 3-10, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 11-16, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 152-160 mm x 120-125 mm.
  • Línufjöldi er 28-30.
  • Síðutitlar.
  • Griporð.

Ástand

Krassað yfir texta á blaði 1r. Áður var einnig blað límt yfir það, en það hefur nú verið losað frá.

Skrifarar og skrift

Með hendi séra Jóns Torfasonar, fljótaskrift.

Skreytingar

Feitletraðir og flúraðir upphafsstafir víða. Stærstur er Þ á blaði 1v.

Feitletruð lína dregin undir sögunni, þversum yfir blað 16v.

Örlítill bókahnútur og þar fyrir ofan F.I.N.I.S..

Örlítið flúr lekur niður úr griporðum.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (193 mm x 160 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Fylgigögn
Laus miði frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter,
Umfang: s. 113-142
Höfundur: Slay, Desmond
Titill: Further Consideration of One of the Dismembered Arnamanæan Paper Manuscripts,
Umfang: s. 198-203
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter,
Umfang: s. 113-142
Lýsigögn
×

Lýsigögn