Håndskrift detailjer
AM 555 h 4to
Vis billederStjörnu-Odda draumur; København, 1686
Indhold
„Draumur Stjörnu-Odda.“
„Þórður hét maður er bjó í Múla …“
„… og ekki undrast þótt kveðskapurinn sé stirður því að í svefni var kveðið.“
„… af veginum en farið hafa. Þykir mér hættligt í náttmyrkri “
„skulum við biðjast fyrir því að …“
„Skrifað eftir mjög gamalli membrana: Kaupmannahöfn, anno 1686.“
Efni Bergbúa þáttar er hér aðeins u.þ.b. tólf línur framarlega úr þættinum á efri hluta blaðs 10v en neðri hluti blaðs 10 hefur verið skorinn burtu. Upphaf þáttarins hefur því líklega verið á neðri hluta blaðs 10r.
Niðurlagið er í AM 564 c 4to.
Uppskrift eftir Vatnshyrnu (sbr. Stefán Karlsson 2000, bls. 336-359).
Fysisk Beskrivelse / Kodikologi
Síðari tíma blaðmerking með blýanti 1-10.
Tvö kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-11; 1 tvinn + stakt blað. Blöð 9-11 eru límd á pappírsföls sem síðan eru saumuð á móttak.
Eftir sögulok á blaði 10r hefur neðri helmingur blaðsins verið skorinn af og stubburinn límdur á hvítt blað sem nú er laust frá.
Skrifað með hendi Árna Magnússonar; léttiskrift.
Band (215 mm x 180 mm x 10 mm) frá 1976.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök; saurblöð tilheyra þessu bandi.
Eldra pappaband (211 mm x 164 mm x 3 mm) er frá ca 1772-1780.
Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Safnmark (og titill) er skráð á fremra kápuspjald. Blár safnmarksmiði er á kili.
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.
Historie og herkomst
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn 1686 (sbr. Árna Magnússon á blaði 1r) sennilega eftir Vatnshyrnu, handriti frá 14. öld sem nú er glatað (sjá Stefán Karlsson 1970: 2000; 336-359).
Það var áður í sömu bók og AM 564 c 4to sem einnig er talin vera uppskrift Árna Magnússonar eftir Vatnshyrnu.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.
[Additional]
VH skráði handritið 9. mars 2009; lagfærði í janúar 2011, ÞS skráði 10. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887 Katalog I;bls. 705 (nr. 1377).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.
Bundið af Matthias Larsen Bloch ca 1772-1780.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í maí 1974.
Bibliografi
Forfatter | Titel | Redaktør | Omfang |
---|---|---|---|
Stefán Karlsson 2000, bls. 336-359 | |||
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Harðar saga. Bárðar saga. Þorskfirðinga saga. Flóamanna saga. [...et al.], | ed. Bjarni Vilhjálmsson, ed. Þórhallur Vilmundarson | 1991; 13 | |
Már Jónsson | Árni Magnússon : ævisaga | ||
John McKinnell | „The reconstruction of Pseudo-Vatnshyrna“, | p. 304-338 | |
Stefán Karlsson | „Misskilin orð og misrituð í Guðmundar sögum“, | 1977; II: p. 121-131 | |
Stefán Karlsson | „Um Vatnshyrnu“, | p. 279-303 |