„… bæja þeirra Steins og Þorbjörns …“
„… og er margt göfugra manna frá honum komið“
„Hafi þeir þökk sem hlýddu og sá sem las, en sá öngva sem skrifaði því hann skrifaði mjög illa.“
og lúkum vér svo sögu Króka-Refs.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-11 (innskotsblað fremst er blaðmerkt 1).
Þrjú kver.
Með hendi séra Jóns Torfasonar, fljótaskrift.
Fremst er innskotsblað (tvinn) frá Árna Magnússyni. Fremra blaðið er autt en á aftara blaðið hefur Árni skrifað titil sögunnar á rektósíðu og látið skrifa upphaf það sem vantaði framan á handritið á versósíðu.
Band frá árunum 1772-1780 (197 mm x 160 mm x 5 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. júlí 1975.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.