Bl. 1 er skaddað.
Ein hönd.
Nótur á bókfelli í gömlu bandi.
Margvíslegar viðbætur og athugasemdir á spássíum og milli lína með hendi séra Þórðar Jónssonar í Hítardal, föður skrifarans (sbr. seðil).
Band frá júlí 1978.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
Fastur seðill (169 mm x 75 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Þessa Eyrbyggja sögu hefur ritað Þorsteinn sálugur Þórðarson, en variæ lectiones (correctiones) sem á spássíunum og uppi yfir línunum eru, eru með hendi síra Þórðar í Hítardal, föður hans. Hæc certa sunt.“
Með hendi Þorsteins Þórðarsonar (sbr. seðil) og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 643.
Þorsteinn Þórðarson á Skarði gaf Árna Magnússyni handritið líklega árið 1686, en Þorsteinn hafði skrifað það i æsku. Utan um það voru þá tvö blöð úr Heimskringlu frá því um 1300 (sbr. AM 39 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. september 1978.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1978. Eldra band fylgir. Upphaflega var tveimur blöðum úr Heimskringlu (frá því um 1300) slegið utan um handritið.