„ANNALAR vmm þad sieligt ſem til hefur | fallid J Danmỏk, Noegi, Þyſkalandi | og Jslandi, og Annaſtadar, fra þui | Datum ſkifadiſst. 636.“
Nær yfir árin 636-1394 e. Kr. Titill er undirstrikaður.
Á spássíum eru ártöl og tilvísanir til áherslu.
Strikað hefur verið yfir texta á bl. 48v.
Band frá 1973-1974.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli.
Fastur seðill (146 mm x 94 mm) Árna Magnússonar: „Þessa annála hefur Þormóður Torfason óefað fengið á Hólum, því þar aftan við var drápa síra Magnúsar Ólafssonar um herra Guðbrand. Þeir eru og (si recte perspicio) með hendi skrifara herra Þorláks.“
Handritið er tímasett til fyrri hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 617.
Árni Magnússon fékk handritið 1689 frá Þormóði Torfasyni, en hann taldi að Þormóður hefði fengið það á Hólum. Rök Árna eru einkum þau að aftan við annálana var drápa séra Magnúsar Ólafssonar um Guðbrand Þorláksson biskup, en einnig sýnist honum handritið með hendi skrifara Þorláks Skúlasonar biskups.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. nóvember 1997.
Tekið eftir Katalog I , bls. 617 (nr. 1177). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 21. nóvember 2001. Már Jónsson skráði seðla Árna Magnússonar í febrúar 2000.
Viðgert af Birgitte Dall og bundið af Mette Jacobsen á árunum 1973-1974.