„Eirn lÿtill bæklingu af: fäumm Bÿskumm Biskupum sem vered | hafa ä Islande og huørninn Skälhollt var bigt | first og þar settur Bÿskupzstöll og af huorium | þad var tilsett“
„Bækling þennann kalla eg Hüngur vøku ...“
„... og þolinnmæde vid öhlydna menn og Rängglätata “
„Vmm hinn helga Þorläk Biskup“
„Siøtte Biskup i Skälhollte var hinn heilage Þorläkur ...“
„... hann vard Biskup effter Þorläk modur broder sin“
Brot, einungis upphafið á frásögninni um Þorlák helga.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki Amsterdam (bl. 2, 3, 6, 5, 7, 10, 11 ).
Mótmerki: Einn stakur stafur (bl. 1, 4, 5, 8, 9, 12 ).
Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Dárahöfuð með kraga og sjö bjöllum (bl. 13, 16 ).
Blaðmerking 1-16 (1r-16r) með rauðu bleki, með hendi Kålunds. Hann merkir einnig seðilinn sem er fremst með a og þann sem er aftast með b.
Fjögur kver:
Aftast í handritinu eru gamlar viðgerðir (sjá einkum 13r og 16v, 14v og 15r), en einnig ummerki um enn eldri viðgerðir sem hafa verið fjarlægðar. Þær hafa náð inn á leturflöt og skilið eftir sig límklessur og óhreinindi. Af þeim sökum er texti sumstaðar torlæsilegur (13v og 14r, 15v og 16r).
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Á stöku stað eru blekdregnir upphafsstafir (1-4 línur) dregnir ögn stærra og örlítið skreyttir.
Fyrirsagnir og upphaf kafla eru skrifuð með kansellískrift.
Lítill bókarhnútur á bl. 1v.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Band frá 1772-1780 (194 mm x 155 mm x 6 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:611).
Var áður aftast í handriti þar sem Knýtlinga saga var fremst (líklega AM 1006 4to). Aftan við Hungurvöku er upphafið á Biskupaannálum Jóns Egilssonar (hefjast hér á Þorláki helga), en afgangurinn var fjarlægður úr handritunu og blað límt yfir upphafið. Það blað hefur nú verið fjarlægt. Athugasemd með hendi séra Þórðar Jónssonar á Staðastað er á spássíu á 16v, skrifuð á stúdentsárum hans í Kaupmannahöfn c1690 (sbr. seðla).
Árni Magnússon fékk handritið frá Páli Vídalín lögmanni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.