„Skalholts Biskupa Annall“
„Teitur het madur er Skalholt bigde first ...“
„... andadist | 1568 j fóstu jnngang“
Pappír með vatnsmerkjum:
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Skreytt skjaldarmerki (bl. 1, 4, 7 ).
Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Skjaldarmerki með kórónu efst (bl. 5, 6, 10, 11, 16, 17 ).
Mótmerki ( 19 ).
Blaðmerking 3-46 (2r-23v) þar sem önnur hver blaðsíða er merkt. Merkingin á bl. 1r virðist hafa horfið, blaðið er skaddað á jöðrunum, en síðan hefur einhver merkt það nr. 1 með blýanti.
Þrjú kver og tvö stök blöð:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Í upphafi kafla og í fyrirsögnum eru upphafsstafir á örfáum stöðum dregnir ögn stærra, kansellískrift.
Bókahnútur á 23v.
Band frá nóvember 1973 (211 mm x 181 mm x 16 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Eldra band er pappaband frá 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Safnmark skrifað á bókarkápu, tveir límmiðar á kili með safnmarki og númer.
Árni Magnússon fékk handritið árið 1710 hjá Benedikt Hannessyni frá Snæfjöllum, en hann frá Grími Einarssyni, Eyjólfssonar (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.