„Latína er list mæt“
„Margt snýst mjög fort“
„Einn lijtill bæklingur af faumm Byſkupumm …“
Framan við efnið á bl. 1r hefur verið krafsað yfir efri hluta en þar undir eru fjórar vísur.
„Vmm hinn helga Þorlak byſkup“
Hefst á sjötta Skálholtsbiskupi.
Blaðsíðumerking 1-101 (nema auð blöð fremst).
Griporð.
Mannsmynd á neðri spássíu bl. 22v.
Pennaflúraðir litlir upphafsstafir við upphaf kafla.
Rauðritaðar fyrirsagnir í seinni hluta.
Nótur á bókfelli í gömlu bandi.
Á innlímdu saurblaði, e.t.v. úr eldra bandi, er ártalið 1650 og þrjár íslenskar vísur sem lofa fall biskupaveldisins, undirritaðar Jon p. Araſon J Vatz . Þar standa nöfnin: Erlendur Árnason, Sæmundur Narfason og Jón Jónsson. Aftan á er vísa með annarri hendi (Gyrðir kembir gula eik).
Band frá því í mars 1974. Strigi á kili og hornum, strigaklæðning.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Handritið er tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 592.
Árni Magnússon fékk handritið frá Jónasi Daðasyni en honum sendi til Kaupmannahafnar Sigurður Björnsson lögmaður (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. júní 1974.
Tekið eftir Katalog I , bls. 592 (nr. 1127). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 2. nóvember 2001. Már Jónsson skráði seðla Árna Magnússonar í febrúar 2000.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1974. Eldra band fylgdi.