„Nokkrar máldagakópíur, samanskrifaðar eftir máldagabók Helgafellsklausturs, um ítök nokkra jarða sem liggja í Arnarstapaumboði á Snefellsnes“
Á bl. 37r skrifar Ögmundur Sigurðsson nafn bróður síns, Skapta Sigurðssonar, og dánarár, sem er 1687. Síðar hefur e-r skráð nafn Ögmundar og dánarár hans, sem er 1690. Bl. 37v er autt.
Ein hönd.
Á fremra saurbl. 1r er athugasemd um feril.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Fastur seðill (207 mm x 160 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þessa bók á ég undirskrifaður. Reykhólum d. 5. júní Gísli Jónsson.“
Handritið er tímasett til c1650-1690, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 516.
Gísli Jónsson í Mávahlíð hélt að Guðmundur á Fróðá hefði skrifað handritið, en Árni Magnússon taldi það með hendi Jóns Steindórssonar á Knerri.
Gísli Jónsson átti handritið 5. júní 1702, þá búsettur á Reykhólum . Svo virðist sem hann hafi fengið það frá ekkju Andréss Andréssonar. Árni Magnússon fékk það síðan frá Gísla Jónssyni, sem þá var búsettur í Mávahlíð (sjá saurbl. og seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. september 1973.