Skráningarfærsla handrits

AM 242 4to

Bréfabók Guðbrands byskups Þorlákssonar ; Ísland, 1550-1600

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

(1r-249v)
Bréfabók Guðbrands byskups Þorlákssonar
Athugasemd

Óheilt.

Meðal efnis eru gömul skjöl og samtímaskjöl, t.d. dómar, afsöl og vitnisburðir. Aukinheldur eru hér varðveittar upplýsingar er snerta biskupinn sjálfan, t.d. um fjárreiður hans og kirkjunnar, prestana og prestaköll biskupsdæmisins. Á bl. 67v eru athugasemdir á dönsku um ákvæði Stettinarsamkomulagsins, en á bl. 70v-71 frásagnir af vígslu biskupsins í Kaupmannahöfn 1571 og reisu hans til Íslands.

Síðasta blaðið í örkum oktavóblaðanna er oft autt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
249 blöð () meðtalin eru blöð í oktavó.
Umbrot

Ástand

  • Hér og þar vantar sennilega í hdr.
  • Aðeins er varðveittur fjórðungur af neðri helmingi bl. 66 og innri rönd af bl. 79.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Hluti af handritinu (blöð í oktavó) er afrit af ýmsum skjölum bréfabókarinnar. Afrit þessi eru skrifuð í upphafi 18. aldar af skrifara Árna Magnússonar á bl. 3-10, 19-24, 26-31, 39-44, 91-94, 97-98, 116-121, 123-130, 136-145, 150-157, 164-167, 171-174, 176-183, 185-194, 199-200, 206-211, 213-216, 218-221, 223-225, 227-230, 241-244 eru.

Band

Band frá því í febrúar 1961.  

Fylgigögn

Seðill með hendi Árna Magnússonar við bl. 11.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til síðari helmings 16. aldar í  Katalog I , bls. 509.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Arasyni (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. september 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 509-510 (nr. 968). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 25. september 2001.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í febrúar 1961. Eldri og yngri hluti aðskildir og bundnir sér. Hvorttveggja í einni öskju ásamt eldra bandi.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn