Skráningarfærsla handrits

AM 149 4to

Jónsbók ; Ísland, 1540-1560

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-70r)
Jónsbók
Athugasemd

Óheil.

Bl. 70v upprunalega autt, á því eru nú nokkur mannanöfn.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
70 blöð ().
Umbrot

Ástand

Vantar í handrit.

Skreytingar

Upphafsstafir í mörgum litum og sumir þeirra skreyttir.

Rauðar fyrirsagnir.

Band

Leðurband með leifum af spennum, málmur á hornum og miðjuskjöldur. Ný spjaldblöð og saurbl., gömlu spjalblöðin tekin upp og bundin framan við nýju saurblöðin. Gömlu spjaldblöðin eru bókfell með texta úr kirkjulegu latnesku handriti.  

Fylgigögn

Einn seðill (145 mm x 101 mm)frá Árna Magnússyni með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík: Þessi bók kom frá syslumanninum Markúsi Bergssyni mér til eignar 1728.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til um 1550 (sjá  ONPRegistre , bls. 446), en til um 1500 í  Katalog I , bls. 433.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Markúsi Bergssyni sýslumanni árið 1728 (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. febrúar 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 433 (nr. 814). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 1886. GI skráði 27. ágúst 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Jónsbók

Lýsigögn