Seðill 1 (156 mm x 202 mm): „Járnsíða er skrifuð eftir membrana frá Staðarhóli (þeirri sem ég nú á) þar er hún sine titulo nema upp yfir 6ta dálkinum frá upphafinu er af neoterico skrifað: Lögbók Hákonar kóngs. Í membrana er flestum bálkunum samanslengt, og vantar öll þeirra nöfn. XI. capituli í Mannhelgi byrjast á óvenjulega stórum staf. Mitt í seinasta arkið vantar II (2) blöð eða fleiri. Aftan við bókina vantar úr XI línum hverjar sumar heilar, sumar hálfar afrifnar eru. Proportio á línunum er þessi: sættareiður skal standa um öll XL markamál. Nú skal nefna III menn á hvora hönd. Þetta er seinast af línunum sem heilar eru. Það sem hér er óundirdregið er eftir gátu skrifað að svo muni vera eiga, en það sem undirdregið er eru fragmenta af línunum, er eftir standa. Hinum sakaða á þann hátt sem sagt er um tylftareið. Hafi III af þeim en hann sjálfur hinn fjórði og II fanga vottar. Eiður skal standa um öll V markamál og IIII markamál. Þar sem nefna skal II menn á hvora hönd. Hinum sakaða. Hafi þá II af sem hann fær og sjálfur hinn þriðji. En fyrir III markamál og þrem mörkum smærri[?] skal nefna til lýrittareiðs sinn mann á hvora hönd hinum sakaða. Hafi einn af þeim sé sjálfur annar. Fangavottur hinn þriðji. Þessi eiður skal standa til þess er hafa skal tveggja manna eið tveggja sem fyrr segir. Og er hér með endi bókarinnar.“
Seðill 2(163 mm x 105 mm): „Sættareiður skal standa: um öll XL: markamál nú skal nefna III menn á hvora hönd (hér vantaði í Staðarhóls[bók] en þetta er skrifað eftir þeirri sem Þormóður Torfason á /: þeim er sakaður er á þann hátt sem sagt er um XII eið: hafi þrjá menn af þeim en hann sjálfur hinn fjórði, II fangavotta. Lýrittareiður skal standa um öll XII markamál þar sem nefndir eru II menn á hvora hönd hinum seka hafi tvo af þeim sjálfur hinn þriðji, /: varðlesið í Staðarhólsbók :) En fyrir III markamál og etc: eftir Hákonarbók (Járnsíða) hjá Þormóði Torfasyni.“