Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 343 fol.

Jónsbók ; Ísland, 1330-1340

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-90r)
Jónsbók
Upphaf

Magnús með Guðs miskunn …

Niðurlag

… en virði þó til fullra aura.

Notaskrá
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
iii + 91 + i blað (278 mm x 195 mm). Bl. 90v-91v eru auð. Bl. 1r upprunalega autt.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-90. Aftasta blaðið er ómerkt.

Umbrot

  • Tvídálka.
  • Leturflötur er ca 200-201 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er 26-28.
  • Víða er strikað fyrir línum (sjá t.d. bl. 17r og 77r).
  • Síðutitlar.

Skrifarar og skrift

Að mestu með einni hendi óþekkts skrifara, textaskrift.

Skreytingar

Litmyndir víða, einkum í upphafsstöfum, til dæmis á bl. 1v, 2v, 14v, 24r, 84r.

Upphafsstafir í ýmsum litum, einkum rauðum og grænum, margir mikið skreyttir, t.d. á bl. 6r, 33r, 37v, 63v, 68v 77v, 81r.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Rauðritaðir síðutitlar.

Teikning af dýri á bl. 1r og af dýrshaus á bl. 89r, líklega hvort tveggja síðari tíma viðbót.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 90 er innskotsblað frá 17. öld.
  • Griðasetning með hendi frá um 1400 hægra megin og ofan til á bl. 1r, sem upprunalega var autt.
  • Athugagreinar tveggja eigenda handritsins á bl. 1r; Magnúsar Magnússonar frá 1662 og Jóns Vídalíns.
  • Víða spássíutilvísanir og athugasemdir með yngri hendi.

Band

Band frá júlí 1936 (288 mm x 211 mm x 40 mm).

Þykk pappaspjöld klædd gráleitum pappír. Skinn á kili og hornum. Handritið liggur í öskju.

Fremsta og aftasta saurblað tilheyra bandi en tvinn úr skinni er framan við textablokkina.

Gamalt band frá 1886.

Fylgigögn

Einn seðill (162 mm x 106 mm) með hendi Árna Magnússonar festur við annað saurblað fremst, versóhlið, með upplýsingum um feril: Þessa lögbók hefi ég 1703 fengið af magister Jóni Þorkelssyni, en honum af ekkju Jóns Magnússonar frá Eyri, 1700. Hafði Magnús Magnússon bókina gefið Jóni syni sínum og skal honum til forna hafa verið eign Jóns á Svalbarði.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1330-1340 (sjá ONPRegistre , bls. 441), en til fyrri hluta 14. aldar í Katalog I , bls. 279.

Ferill

Magnús Magnússon gaf Jóni syni sínum (Jóni Magnússyni eldra mínu afanafni) handritið árið 1662, en ekkja Jóns, Ingibjörg Pálsdóttir á Eyri í Seyðisfirði, gaf það Jóni Þorkelssyni Vídalín árið 1700, en hann Árna Magnússyni 1703 (sbr. bl. 1r, seðil og AM 435 a 4to, bl. 178v-179). Sagnir í ætt eigenda herma að gamli Jón Magnússon á Svalbarði hafi átt handritið, og því nefndi Jón Sigurðsson það Svalbarðsbók (sbr. JS 409 4to).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1981.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1973.

Notaskrá

Höfundur: Magerøy, Ellen Marie
Titill: , Islandsk hornskurd. Drikkehorn fra før "brennevinstiden"
Umfang: Supplementum 7
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Palæografi. B. Norge og Island, Nordisk kultur
Umfang: 28:B
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Kirkja og kirkjuskrúð, Lýsingar í íslenskum handritum
Umfang: s. 93-98
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum á 15. öld, Gripla
Umfang: 27
Höfundur: Gísli Baldur Róbertsson
Titill: Snurðan á þræði Reykjafjarðarbókar, Gripla
Umfang: 16
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: , Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages
Umfang: 7
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica
Umfang: 28
Höfundur: Fett, Harry
Titill: Miniatyrer fra islandske haandskrifter, Bergens Museums Aarbog
Umfang: 7
Höfundur: Fett, Harry
Titill: Miniatures from Icelandic manuscripts, Saga book
Umfang: 7
Höfundur: Jensen, Helle
Titill: Fragmenter af et kongesagahåndskrift fra det 13. århundrede,
Umfang: s. 24-73
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , Gyðinga saga
Ritstjóri / Útgefandi: Wolf, Kirsten
Umfang: 42
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: , Skarðsbók - uppruni og ferill
Umfang: I
Höfundur: Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Titill: Marginalia in AM 510 4to, Opuscula XVII
Umfang: s. 209-222
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 343 fol.
  • Efnisorð
  • Lög
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Jónsbók

Lýsigögn