Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 266 fol.

Bréfabók Gissurs biskups Einarssonar ; Ísland, 1600-1700

Innihald

1 (1r-84v)
Bréfabók Gissurs biskups Einarssonar
Athugasemd

Fyrir árin 1540-1547.

Afrit.

Strikað yfir bl. 7 sem er innskotsblað með afritum og útdráttum úr skrifum frá sama tíma áhrærandi biskupinn.

Bl. 63v og 85 auð.

2 (86r-94v)
Bréfabók Marteins biskups Einarssonar
Athugasemd

Fyrir árin 1548-1554.

Afrit.

Bl. 95 autt.

3 (96r-135r)
Útlegging á boðorðunum tíu
Athugasemd

Bl. 135v autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Kanna með einu handfangi og fangamarki PC // Ekkert mótmerki ( 2 , 4 , 6 , 9 , 10-12 , 22-25 , 30-34 , 36 , 38 , 40? , 43-44 , 46 , 49-50 , 52-53 , 56 , 60 , 62-63 , 66-67 , 70-73 , 75 , 77 , 80-81 , 83 , 90 , 92-95 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Kanna með tveimur handföngum 1, vínber og bókstafir PDM fyrir neðan // Ekkert mótmerki ( 98-99 , 102-103 , 108-109 , 115 , 122 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Kanna með tveimur handföngum 2, vínber og bókstafir BDM // Ekkert mótmerki ( 104-105 , 113 , 117 , 119 , 124 , 126-132 ).

Blaðfjöldi
135 blöð (305 mm x 195 mm).
Umbrot

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 7 innskotsblað í kvartó, óviðkomandi upprunalega handritinu.
  • Spássíugrein um eiganda með óþekktri hönd, neðst á bl. 1r.

Band

Band frá 1968.

Fylgigögn
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar.

  • Seðill 1 (162 mm x 111 mm): Ex literis Diaconi Gissuri Einarii scriptis ad Ottonem Gottschalci. messis qvidem multa, operarum pauci. Dominus Deus dignetur notis in suam messem operarios mittere. et tu, mi otto, nullum potes Deo majus officium præstare, qvam sanctum Evangelium pusillo Christi gregi ore proprio annunciare, sicut hoc ipsum tuis scriptis et maximo labore prosessus es; qvia Deus ab eo plus neqviret, cui multum donavit. ipse te conservet ad gloriam sui nominis et eccliesiæ ædificationem, Amen.
  • Seðill 2 (152 mm x 103 mm): Þetta er hönd síra Halldórs í Reykholti og meinast sem það skrifað sé þá hann var [...?] kirkju í Skálholti. Bókin er úr fórum mag. Brynjólfs. Það er ordinatiu=concept síra Böðvars í Reykholti. Certo scio, postqvam alterum illud in 4to Reykholti inspexi.
  • Seðill 3 (162 mm x 111 mm): Síra Þórður veit ei hvaðan hann hefur þetta. Óvíst hvort úr skræðunni á Hvoli er hvarf, eða eftir dómabók frá Rauðamel í 4to, sem var í láni hjá síra Guðmundi id Hellna og á Staðarstað. Þó ætlar hann þetta síðsta óvissara því þar muni ekkert þesslags neitt inni verið hafa. Verte. Þetta allt er manifeste skrifað úr bréfabók Gissurar biskups, et qvidem þvi exemplare in folio, er ég fékk af síra Jóni Torfasyni. Errata et ductus literaturam obscuri id e videnter monstraet.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 240. Bl. 96r-135r skrifuð af sr. Halldóri Jónssyni í Reykholti, er hann var prestur í Skálholti (sbr. seðil).

Ferill

Jón Torfason hefur átt bókina 1699 (sbr. bl. 1r), en áður hefur hún verið í fórum Brynjólfs Sveinssonar biskups (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. desember 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 240-241 (nr. 421). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. DKÞ skráði 28. júní 2002. ÞÓS skráði 3. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1968. Eldra band fylgir með í öskju.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Et brudstykke af Kongespejlet: Med bemærkninger om indholdet af AM 668,4°,
Ritstjóri / Útgefandi: Bekker-Nielsen, Hans
Umfang: s. 105-112
Höfundur: Jón Ólafsson
Titill: , Safn til íslenskrar bókmenntasögu
Ritstjóri / Útgefandi: Guðrún Ingólfsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir
Umfang: 99
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn