Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum 1 ( 1, 7-8, 11 ) // Mótmerki: Vatnsmerki 2.
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum (vatnsmerki 1 og 3) // Mótmerki: Fangamark PH ( 2-4, 6, 10, 12, 14 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum 2 ( 9, 13 ) // Mótmerki: Vatnsmerki 2.
Blaðmerking með svörtu bleki, 1-13.
4 kver:
Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.
Eyður fyrir stóra upphafstafi, en minni upphafstafir (1-2 línur) eru skrautstafir.
Fyrsta lína oft skrifuð með stærri skrift.
Pappaband, sennilega frá tíma Jens Jacob Weber (1771-1780). Á bókarkápu, „No 169 B. Saga af Þorsteine Bæarmagn.“ er skrifuð með svörtu bleki. Tveir límmiðar eru á kili, safnmark og númer.
Skrifað á Íslandi, af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 140, en virkt skriftartímabil Jóns var ca 1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 d fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.
Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1976.