„ ok kuad þat mundu ırı honum“
Textinn hefst í 38. kapítula.
Blöðin eru snjáð og skítug og nánast ólæsileg; enn fremur eru þau götótt.
Band frá 1995. Pappakápa, bl. fest á móttök inn í japanpappír.
Seðill með hendi Guðbrands Vigfússonar þar sem segir að Páll Pálsson hafi fundið blöð þessi utan um bók í Stiftsbókasafni Reykjavíkur árið 1858 eða 1859.
Blöðin eru tímasett um 1400 í Katalog I , bls. 117 (sjá einnig ONPRegistre , bls. 434).
Samkvæmt seðli frá Guðbrandi Vigfússyni fann Páll Pálsson þessi blöð utan um bók í stiftsbókasafni Reykjavíkur árið 1858 eða 1859.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. september 1996.
Tekið eftir Katalog I , bls. 114-17 (nr. 198). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. Haraldur Bernharðsson tölvuskráði í febrúar 2001.
Gert við og bundið í júní til nóvember 1995. Í öskju með brotum úr níu öðrum handritum. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerðum og ljósmyndun.