Bl. 1 hefur skaddast nokkuð við afskurð.
Leifar af fyrirsögnum með rauðu bleki.
Leifar af upphafsstöfum í ýmsum litum.
Band frá 1995. Pappakápa, bl. fest á móttök inn í japanpappír.
Fastur seðill (221 mm x 113 mm) með hendi Árna Magnússonar og Guðbrands Vigfússonar: „Það fyrsta af þessum blöðum tók með sér frá Íslandi monsieur Þorsteinn Sigurðsson 1715 en það kom hingað 1716. Hafði hann það fengið norður í landi en eigi í Austfjörðum.“
Blöðin eru tímasett um 1300 í Katalog I , bls. 115 (sjá einnig ONPregistre , bls. 434).
Bl. 1 fékk Árni Magnússon 1716 frá Þorsteini Sigurðssyni, sem hafði fengið það að norðan og flutt til Kaupmannahafnar 1715.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. september 1996.
Tekið eftir Katalog I , bls. 114-17 (nr. 198). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. Haraldur Bernharðsson tölvuskráði í febrúar 2001.
Gert við og bundið í Kaupmannahöfn í júní til nóvember 1995. Í öskju með brotum úr níu öðrum handritum. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerðum og ljósmyndun.