Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 157 c fol.

Bárðar saga Snæfellsáss ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-22v)
Bárðar saga Snæfellsáss
Titill í handriti

Sagan af Bárði Snæfellsás

Upphaf

Dumbur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… Ei er getið að Gestur hafi nokkurt barn átt.

Baktitill

Lýkur þar sögu Bárðar Snæfellsáss og Gests sonar hans.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
22 blöð (316 mm x 202 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 1-44.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-22, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 265 mm x 150 mm.
  • Línufjöldi er ca 31-36.
  • Markað hefur verið fyrir innri og ytri spássíu blaða.
  • Vísuorð eru sér um línu (sjá t.d. blöð 5r, 6v og á fleiri stöðum).
  • Griporð eru á blöðum 8v og 16v.

Skrifarar og skrift

Skreytingar

  • Skreyttur upphafsstafur í fyrirsögn og í upphafi texta á blaði 1r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Pappaband (320 null x 217 null x 8 null) frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.

Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) en til um 1700 í Katalog I , bls. 109. Virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.

Það er uppskrift eftir pappírshandriti í Konungsbókhlöðu (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).

Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar  3. desember 1885, Katalog I; bls. 109 (nr. 188), DKÞ skráði 28. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 2. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Lýsigögn
×

Lýsigögn