Håndskrift detailjer
AM 146 fol.
Vis billederEgils saga Skallagrímssonar; NO, 1690-1697
Indhold
Egils saga Skallagrímssonar
„Hér hefir Egils sögu“
„Úlfur hét maður, son Bjálfa og Hallberu …“
„… og urðu flestir miklir menn“
„og lýkur þar svo þessari frásögn.“
Eyða fyrir lausavísu á bl. 64r.
Eyða fyrir niðurlagi Arinbjarnarkviðu á bl. 90r.
Fysisk Beskrivelse / Kodikologi
- Handritð er blaðsíðumerkt 1-207.
- Það hefur verið blaðmerkt síðar af Kålund með rauðu bleki, 1-102.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 260 mm x 145-150 mm.
- Línufjöldi ca 29-32.
- Vísuorð eru sér um línu.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Lítill bókahnútur á bl. 102r.
- Nokkrar leiðréttingar með hendi Árna Magnússonar, t.d. á bl. 13r og 18v.
- Tilvísanir í blaðsíður annars rits á bl. 172r, 174v og 176v.
Band frá 18. öld (315 mm x 205 mm x 30 mm). Spjöld og kjölur klædd bókfelli. Leðurþvengir binda kjöl við spjöld utanfrá. Blár safnmarksmiði límdur á kjöl.
- Fastur seðill (140 mm x 130 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þessi drápa stendur í engri Egils sögu, nema þeim er Þormóður hefur látið skrifa. Hann fékk drápuslitrið frá mér og lét svo setia það inn í sín exemplaria, qvæ interpolatio ferenda non est. Í öðru exemplare, eins og þessu með hendi Ásgeirs, er og drápan. Það fékk Etatsráð Meier hjá Þormóði og ég eftir Meier. [Bætt við að neðan með annarri hendi:] Á sjálfsagt við Arinbjarnardrápu.“
- Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Historie og herkomst
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I, bls. 103, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var c1686-1707.
Handritið var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók voru einnig AM 173 fol., AM 157 f fol., Vatnsdæla saga og AM 157 b fol. (sbr. AM 435 b 4to, bl. 4v-5v).
Uppskriftin er grundvölluð á Möðruvallabók, AM 132 fol. (e.t.v. frá því þegar hún var heilli), með hliðsjón af AM 463 4to (sbr. JS 409 4to og Bjarna Einarsson í Um Eglutexta Möðruvallabókar í 17du aldar eftirritum, bls. 49-52).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XI fol. í safni Þormóðs Torfasonar (sbr. AM 435 b 4to). Árni Magnússon hefur líklega tekið hana í sundur.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. maí 1990.
[Additional]
VH lagfærði í nóvember 2010. ÞS skráði 5.-8. desember 2008. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 26. september 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. nóvember 1885 (sjá Katalog I 1889:103 (nr. 175).
Yfirfarið af Mette Jacobsen í febrúar 1990 (sbr. seðil).
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Myndir gerðar í lesvél á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.