„Hér byrjar Glúms sögu“
Uppskrift eftir AM 160 fol..
„Helgi hét maður og var kallaður Helgi hinn magri …“
„… allra vígra manna hér á landi.“
„Omnia tunc bona sunt, clasula quando bona est. K.H.S. meh.“
Og lýkur þar sögu Glúms Eyjólfssonar.
8 kver:
Með hendi Kolbeins Hannessonar (sbr. skrifaraklausu á bl. 34r), kansellískrift.
Band frá 1910-1920 (302 mm x 215 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd brúnum marmarapappír, bókfell á kili.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).
Seðill á fremra saurblaði rektó (131 mm x 132 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Frá assessor Thormod Torvesens enke. Úr num. 16. Er confererað við Víga-Glúms sögu í Güldenlöves bók sem magister Björn gaf honum.“
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVI fol. í safni Þormóðs Torfasonar en Þormóður hafði fengið hana frá sr. Torfa Jónssyni í Bæ (sbr. AM 435 b 4to, bl. 9r-9v). Árni Magnússon fékk bókina frá ekkju Þormóðs og tók í sundur árið 1720 (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 9r-v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. september 1974.