Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 5343 4to

Teikningar af torfbæjum í Eyjafirði 1874-1946 ; Ísland, 1975-1986

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Teikningar af torfbæjum í Eyjafirði 1874-1946
Notaskrá

Teikningar þessar eru byggðar á útlínuteikningum sem er að finna í bók Jónasar Rafnar: Bæjalýsingar og teikningar. Akureyri 1975.

Athugasemd

Teikningar af 24 torfbæjum í innanverðum Eyjafirði 1874–1946. Teikningarnar eru gerðar af Guðmundi Júlíusi Frímannssyni , kennara og skólastjóra á Hjalteyri. Teikningar þessar byggði hann einkum á teikningum Jónasar Rafnar , læknis. Teikningar Jónasar, sem birtust í bók hans „Bæjarlýsingar og teikningar“ (útg. 1975), sýndu útlínur bæjanna og þá herbergjaskipan sem þar var. Guðmundur naut einnig fyrirsagnar Sigurðar Gunnars Jóhannessonar kennara um suma þessara torfbæja. Þá hafði hann ljósmyndir af nokkrum bæjanna til að styðjast við. Upphaflega hóf hann þessa vinnu vegna þess að vinur hans bað hann um að teikna myndir af nokkrum bæjum fyrir sig eftir teikningum Jónasar en síðar hélt Guðmundur áfram að teikna bæjamyndirnar sér til gamans í frístundum sínum. Guðmundur mun hafa gert þessar teikningar á áttunda áratug 20. aldar. Teikningarnar eru allar merktar með nafni bæjanna og ártölum sem er að finna í bók Jónasar Rafnar.

Hluti þessara teikninga eru til varðveittar í ljósriti á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

1.1 ((1))
Stokkahlaðir
1.7 ((7))
Samkomugerði
1.11 ((11))
Kolgrímastaðir
1.12 ((12))
Skáldstaðir
1.13 ((13))
Jórunnarstaðir
1.15 ((15))
Finnastaðir
1.17 ((17))
Stekkjaflatir
1.19 ((19))
Sámsstaðir
1.21 ((21))
Kaupangsbakki
1.23 ((24))
Króksstaðir

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
26 blöð (158 mm x 209 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Guðmundur J. Frímannsson

Band

Óinnbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland um 1975-1986.
Ferill

Keypt í Bókinni 4. október 1993.

Sett á safnmark í desember 2013.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu 12. janúar 2015 ; Sigríður H. Jörundsdóttir frumskráði 4. desember 2013 ; úr óprentaðri handritaskrá.

Notaskrá

Höfundur: Jónas Rafnar
Titill: Bæjalýsingar og teikningar úr Eyjafirði fram
Lýsigögn
×

Lýsigögn