Pappír.
Skinnband.
Í bindinu er sendibréf frá Ámunda Halldórssyni á Kirkjubóli til Bjarna Gíslasonar í Ármúla (1845), en sonur Bjarna, Gísli í Ármúla, hefur fengið handritið 1846 frá Sölva Sveinssyni á Kirkjubóli.
Í bindinu er einnig bréf frá Hólmfríði Jónsdóttur til Bjarna Gíslasonar, en það vantar framan af því.
Á saurblaði að framan stendur: „Þessa bók á með réttu Madme Ólöf Jónsdóttir á Kirkjubóli í Skutulsfirði og enginn annar. Guð blessi þá sem bókina á.“
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. bindi, bls. 618-619 .
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. janúar 2018.