Fornmannasögur Norðurlanda annað bindi. Skrifaðar eftir gömlum bókum MDCCCLXXXIII ( 1r )
„Sagan af Katli hæng“
„Hallbjörn hét maður, hann var kallaður hálftröll … “
„ … Örvar-Oddur var sonur Gríms, og lýkur hér sögunni af Katli hæng.“
„Sagan af Grími loðinkinna“
„Svo er sagt af Grími loðinkinna, að hann bæði mikill og sterkur, og hinn mesti garpur … “
„ … Hann varð ellidauður maður, og lýkur hér sögu Gríms loðinkinna, er hér hefur upp Örvar-Odds sögu og er mikil saga. “
„Hér hefur upp söguna af Örvar-Oddi“
„Grímur hét maður og var kallaður Loðinkinni … “
„… Að þessu fyrirrituðu bindum vér hér enda á sögu Övar Odds, og allra hans frægðar verka, hafi sá þakkir er les, en ánægju er hlýðir á. “
„Sagan af Án bogsveigir“
„Í þann tíma er fylkiskonungar voru í Noregi, hófst þessi saga … “
„ … hann var faðir Sigurðar bjóðaskalla ágætis manns í Noregi. Og lýkur hér við sögu Áns bogsveigir.“
Blað 132 (bls. 267-268) er á röngum stað í handritinu. Það ætti að vera milli blaða 134 og 135. Þetta blað tilheyrir næstu sögu í handritinu, Huldar sögu hinnar miklu.
„Ynglinga saga eður og af Hölga hinum háleiska og Huld drottningu hans hinni ríku“
„Það er sagt að áður en Gefjan fékk Sæland og Gylfa, héti þar Lagarstöð … “
„ … Ólafur var af ættum Ynglinga, og braut niður heiðna siði í Noregi, var þar með hinum forna átrúnaði lokið. Lýkur svo sögu þessari.“
„Sagan af Sigurði konungi Haraldssyni snarfara“
„I. kap. Vatnar hefir konungur heitið, hann réði fyrir Roga og Hörðalandi … “
„ … og þá lét konungur skrásetja hana, en Oddur Ófeigsson kom með hana út hingað til Íslands. Lýkur hér sögunni af Sigurði konungi snarfara.“
„Sagan af Starkaði gamla Stórvirkssyni“
„I. kap. Svo byrjar þessa sögu, að Starkaður hét maður, hann var kallaður Áludrengur … “
„ … sá haugur er út frá Hleiðrargarði, þar er hét Balungarheiði, sést han enn merki. Lýkur þar með sögu Starkaðar Stórvirkissonar.“
„Sagan af Jasoni bjarta og Herrauði hertoga“
„I. kap. Melander er konungur nefndur er réði fyrir Indíalandi … “
„ … Herrauður gaf Jasyni klæðið góða áður þeir skildu. Og lúkum vér hér sögunni af Jasoni bjarta og Herrauði hertoga.“
„Sagan af Goðleifi prúða“
„I. kap. Í vesturátt af Spaníalandi er landshluti sá er kallast Portúgal … “
„ … Friðleifur jarl stýrði ríki sínu lengi og andaðist í hárri elli. Endar svo sagan af Goðleifi jarli hinum prúða.“
„Sagan af Felix og Iðunni“
„I. kap. Suður í landinu Polonia bjó einn ríkur borgari sem Hinrik hét … “
„ … lifði þetta tengda fólk með þessum hætti langa æfi í lukku og velgengni; endar þannig sagan af Felix og Iðunni.“
„Söguþáttur af Drauma-Jóni“
„I. kap. Hinrik er jarl nefndur í Saxlandi, hann var vitur maður … “
„ … unntust þau Jón jarl og systir keisarans vel og lengi, og lúkum vér hér Drauma-Jóns sögu.“
Pappír.
Innbundið.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. bindi, bls. 568.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 25. apríl 2018 .