Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 251 4to

Samtíningur ; Ísland, 1700-1799

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-65v)
Pontanus saga og Diocletianus
Titill í handriti

Hér skrifast historía af þeim sjö vísu meisturum og Pontiano keisara, einnin hans syni Diocletiano …

Efnisorð
2 (65v-75r)
Gunnlaugs saga ormstungu
Titill í handriti

Sagan af Hrafni og Gunnlaugi ormstungu

3 (75v-89v)
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Titill í handriti

Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli

4 (90r-104r)
Reisubók séra Ólafs Egilssonar
Titill í handriti

Reisuregistur síra Ólafs Egger[t]ssonar. Þess hertekna fanga úr Vestmannaeyjum. Á því ári 1618, þann 16. júlí er hann segist fluttur hafa verið útí Afrika.

Athugasemd

Ólafur er Egilsson

Efnisorð
5 (104v)
Kvæði
Upphaf

Ykkur sem fyrir löngu var veitt …

Skrifaraklausa

J.Þs.

Athugasemd

Án titils.

6 (105r-110v)
Ævintýri
Titill í handriti

Eitt ævintýr eður frásaga af fjórum kaupmönnum

Efnisorð
7 (111r-116v)
Ævintýri
Titill í handriti

Eitt skemmtið ævintýr af tveimur húsfreyjum

Efnisorð
8 (117r-119r)
Ævintýri
Titill í handriti

Þriðja ævintýrskvæði

Upphaf

Firðum bæði og falda ungri gefni …

9 (119r-120v)
Ævintýri
Titill í handriti

Fjórða ævintýrskvæði

Upphaf

Sagnameistara sérleg mennt …

10 (121r-122v)
Múks ævintýr
Titill í handriti

Múks ævintýr

Upphaf

Í Róm bjó ríkur greifi …

Efnisorð
11 (122v-126v)
Eiríks saga víðförla
Titill í handriti

Ævintýr af Eiríki víðförla

Efnisorð
11.1 (126v)
Vísa
Upphaf

Víða Eiríkur framdi för …

12 (127r-146r)
Maríu saga
Titill í handriti

Hér skrifast Maríu saga sem og einnin um barndóminn herrans Christi …

Efnisorð
13 (146v-146v)
Eylandsrímur
Titill í handriti

Hér byrjast nýja Englan[d]s rímur

Athugasemd

Einungis upphaf 1. rímu.

Efnisorð
14 (147r-168r)
Stjörnuspeki og náttúrufræði
Titill í handriti

Heimskringlunnar hegðunarblómstur

15 (168v-178r)
Landafræði
Titill í handriti

Heimskringlunnar landablómstur

Efnisorð
16 (178r-178v)
Landafræði, stjörnufræði og alfræði
Titill í handriti

Undir hvörju himins teikni hvört kóngsríki eða land er liggjandi

17 (179r-179r)
Alfræði
Titill í handriti

Hvörnin vídd landa og sjávar mælist

Efnisorð
18 (179r-179v)
Alfræði
Titill í handriti

Pólíhæð þeirra nafnkunnustu staða og hafna við sjóinn

Efnisorð
19 (179v-186v)
Annálar
Titill í handriti

Á sex dögum skapaði Guð himin og jörð og allar skepnur en hvíldist á þeim sjöunda degi

Athugasemd

Niðurlag vantar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Vatnsmerki.

Blaðfjöldi
i + 186 + i blöð (193 mm x 149 mm).
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-128 (1r-64v).

Umbrot
Griporð.
Ástand

Vantar aftan af handritinu.

Gömul viðgerð hylur griporð á stöku stað.

Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur

Skreytingar

Bókahnútur: 126v.

Band

Skinnband, þrykkt og með upphleyptum kili.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1700-1799?]
Ferill

Eigandi handritsins: Ragnheiður Finnsdóttir á Hvilft á handritið 1855 og þá er það innbundið af Andrési Hákonarsyni á Hóli (fremra saurblað 1r), Ragnheiður Magnúsdóttir 1869 (aftara saurblað 1v)

Jón Sigurðsson fékk handritið frá Magnúsi Özurarsyni, 25. janúar 1870.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Örn Hrafnkelsson las yfir, 20. apríl 2009 ; Eiríkur Þormóðsson lagfærði 17. febrúar 2009 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 2. febrúar 1998
Viðgerðarsaga

Athugað 1998

gömul viðgerð

Myndir af handritinu
165 spóla neg 35 mm

Lýsigögn