Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 19 fol.

Sögubók og fræði ; Ísland, 1840

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-2v)
Skýringargreinir
Titill í handriti

Skýringargreinir með hendi A. Magn. í no. 435 4to folio 82-83 er án efa eiga saman við skinnbækurnar 371 og 544 4to. Exscr. AM 765 4to

Athugasemd

Athugasemd Árna Magnússonar um efni og forrit Hauksbókar og uppskrift af bréfum er varða bókina.

Á blaði 2v er stutt athugasemd um handrit sem eiga kyn sitt að rekja til Hauksbókar.

Efnisorð
2 (3r-7v)
Heimspeki og helgifræði
Titill í handriti

... vin þinn þér því segi ég að þú ert þræll þræls míns ...

Athugasemd

Án titils, upphaf vantar.

Efnisorð
3 (7v-8r)
Heimslýsing og helgifræði
Titill í handriti

Vér viljum það birta fyrir fólki ...

Skrifaraklausa

Aftan við er athugasemd um forritið og ættartala Teits Pálssonar fyrrverandi eiganda Hauksbókar

Athugasemd

Án titils.

Autt blað 8v.

Efnisorð
4 (9r-25v)
Trójumanna saga
Titill í handriti

Hér hefur Trójumanna sögu

5 (26r-26v)
Náttúrusteinar
Titill í handriti

Ematistus hefir purpuralit sem víndropi ...

Athugasemd

Án titils

Efnisorð
6 (27r-68r)
Breta sögur
Titill í handriti

Hér hefur Breta sögur

Athugasemd

Autt blað 68v

7 (69r-83v)
Viðræða líkams og sálar
Titill í handriti

Viðræða líkams og sálar

Athugasemd

Autt blað 84

Efnisorð
8 (85r-91v)
Hemings þáttur Áslákssonar
Titill í handriti

séð hafa. Loðinn svarar: Svo sagða ég að ...

Athugasemd

Án titils, brot

9 (92r-100v)
Hervarar saga og Heiðreks
Athugasemd

Hér hefur upp sögu Heiðreks konungs ens vitra

Niðurlag vantar

10 (101r-122v)
Fóstbræðra saga
Titill í handriti

... kenningarnafn að þú skalt Kolbrúnarskáld heita ...

Athugasemd

Upphaf vantar

11 (123r-126v)
Algorismum
Titill í handriti

Hér byrjar algorismum (List þessi heitir algorismus. Hana fundu fyrst indverskir menn ...)

Skrifaraklausa

Aftan við eru athugasemdir um forrit

12 (127r-132v)
Skálda saga
Titill í handriti

Hér hefur sögu skálda Haralds konungs hárfagra

Efnisorð
13 (133r-133v)
Af Upplendinga konungum
Titill í handriti

Af Upplendinga konungum

14 (134r-137v)
Ragnarssona þáttur
Titill í handriti

Hér segir af Ragnarssunum og hversu margir konungar eru komnir af þeim

Athugasemd

Autt blað 138

Lýsing á handriti

Blaðefni

Vélunninn pappír með engum vatnsmerkjum í sjálfu handriti.

Vatnsmerki á saurblöðum og óskrifuðum örkum: C&Z HONIG undir býkúpu og C&Z HONIG undir tvöföldu X .

Blaðfjöldi
iv + 138 + x blöð (344 mm x 206 mm).
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-272 (3r-138v) (á annarri hverri opnu).

Umbrot

Einn dálkur.

Leturflötur er ca. 140-259 mm x 143-145 mm.

Línufjöldi er 17-36.

Ástand

Ástand handrits við komu: Gott.

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Jón Sigurðsson, fljótaskrift og latínuletur, eiginhandarrit.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Blöð handrits voru ekki lesin saman.

Nákvæm uppskrift af meginhluta Hauksbókar.

Spássíugreinar með sömu hendi.

Band

Band frá því um 1840-1940 (353 mm x 216 mm x 24 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd gulum pappír, brúnt skinn á kili og hornum. Kjölur þrykktur með gyllingu.

Fylgigögn

1 laus seðill á eftir blaði 8v með upplýsingum um eigendur fornrits.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1840?
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu, 14. nóvember 2012 ; Sigrún Guðjónsdóttir aðlagaði skráningu, 6. desember 2011 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 30. október 2000.
Viðgerðarsaga

Athugað 2000.

Lýsigögn