Án eiginlegs titils í handriti en á 1r er ártalið 1823 (og 1824?) og eins konar villuletur, eitthvað e.t.v. stytting á nafni skrifara Á blaði 1v eru spakmæli
„Ignorantia“
„Rámur svanurinn meinast mest“
„S. Níelsson stúdent, J. Níelsson indoctus. 1824 (4r)“
Skopvísur, skrifað með annarri hendi úti á spássíu; Lygilof, skrifað með annarri hendi ofan við.
Vantar framan af, kvæðið merkt nr. 2.
„Sögu-brot af Gullþórir“
„Sögubrotið af Gull-Þóri er ein sú snotrasta mergmesta saga af svo stuttum Íslendinga þáttum, en henni fylgir stór galli, að vort fósturland ber hana ei alla með sér svo ég til viti. En þetta nú skrifaða brot er að miklu leyti af undirskrifuðum að orðfæri lagfært og innsett i Den Ofornuftige [sic] Vinter svo sem til skemmtunar fróðleik stundandi fáfróðum! Einnig er mér sem er plássinu kunnugur nálægt Þorskafirði skemmtun að svoddan riti. Því kann ég með nokkurri vissu segja hvar Rauðsdalur, Askmannsstaðir og Varðafell er, einnig Þorgeirsstaðir, Grímkelsstaðir, Uppsalir höfðu sitt pláss, sjálfsagt Þórisstaðir m.m. en allir þessir bæir eru fyrir löngu niður felldir og eyddir. Það pláss er þó merkilegt sem forfeður vorir útvöldu. Þeir voru sumir tryggir, þá skal ég lofa. Snartatungu þann 10da apríl 1824. Sá er skrifaði! (5v)“
Neðan við Sögu-brot stendur: Þorskfirðinga.
Á blaði 4v eru athugasemdir um Gull-Þóris sögu.
Brot.
Pappír
Vatnsmerki
Gömul blaðsíðumerking [1]-2 (1), 15-22 (2-5), 25-52 (6-19), 61-99 (20-39r)
Milli blaða 1 og 2 vantar 6 blöð (bls. 3-14) úr 8 blaða kveri. Milli blaða 4 og 5 hefur verið fjarlægt (óskrifað?) blað sem hefur verið blaðsíðumerkt 21 og 22. Því hefur á blaði 5 eldra blaðsíðutali 23 verið breytt í 21 og eldra blaðsíðutali 24 í 22. Næsta blað á eftir (6) er hins vegar með óbreytt blaðsíðutal, 25 og 26 o.s.frv. Ekkert blað er því blaðsíðumerkt 23 og 24. Á milli blaða 19 og 20 sýnist hálft kver (4 blöð (óskrifuð?), bls. 53-60) hafa verið burt numin. Úr 14 blaða aftasta kveri handritsins hafa 4 öftustu blöðin (óskrifuð?) verið numin burt.
Aftara saurblað 1r-v hefur losnað frá og liggur nú laust með
Jón Níelsson [í Snartartungu, síðar í Grænanesi]
Í handritaskrá segir: "Kver m. h. Jóns Níelssonar […] (ekki m. h. síra Sveins, bróður hans, eins og talið hefir verið, þótt nafn hans sjáist hér og þar um hdr.)".
Bókahnútar: 39r
Á fremra spjaldblaði (1v) er brot úr bréfi, sem og á götóttu fremra saurblaði (1r-v).
Á aftara saurblaði (1r) er [með annarri hendi] þyngdarútreikningur og: „Þessi bók er afskrifuð eftir pappírsbók í 4to sem rituð var eftir skinnbókinni nobile“.
Á aftara saurblaði (1v) er brot úr bréfi.
Aftara saurblað (2) úr prentaðri bók á dönsku.
Spássíugreinar á stöku stað.
Skinnband með tréspjöldum. Kjölur upphleyptur.
Eigendur handritsins: Helga Jónsdóttir (39v)
G.G. Sigurðsson (1850) (39v)
Jón Þorkelsson rektor, 1897
Athugað 1997