Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 203 4to

Sögubók ; Ísland, 1820-1830

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-43r)
Biskupaannálar
Höfundur
Titill í handriti

Hungurvaka, það eru sérdeilis annálar og markverðar frásögur þeirra hluta sem áður hafa skeð og viðborið í tíð þeirra fyrri biskupa sem verið og lifað hafa bæði í Skálholts- og Hólastifti á fyrri öldum …

Athugasemd

Hungurvaka er skráð með annarri hendi þar eð blaðræma hefur verið límd efst á blöð til styrkingar

Titill í handriti

Þrítugasti biskup er Oddur Einarsson …

Athugasemd

Frásögn um Skálholtsbiskupa á árunum 1589-1639

Titill í handriti

Lífsaga Skálholtsbiskups sáluga mag. Brynjólfs Sveinssonar, samantekin af hans bróðursyni síra Torfa Jónssyni að Gaulverjabæ í Flóa

4 (55r-55v)
Eyrbyggja saga
Athugasemd

  • Eyrbyggja saga, pag. 48, capitula 44 og 45. Um Fróðár-undur
  • Niðurlag vantar

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Vatnsmerki

Blaðfjöldi
ii + 55 blöð (201 mm x 162 mm)
Tölusetning blaða

Leifar af gamalli blaðsíðumerkingu 8-109 (4v-55r) - ekki allt með sömu hendi

Umbrot
Leifar af griporðum 2r-9r
Ástand
Límt yfir skrifflöt á blaði 2
Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu ; Skrifari:

síra Benedikt Þórarinsson í Heydölum

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Jón Pálsson eigandi handrits er hér einnig kenndur við Hlíðarenda (aftara spjaldblað). Nöfn á fremra spjaldblaði og saurblaði benda og til að handritið hafi verið í Múlasýslu (til dæmis Vilhjálmur Marteinsson og Jón Einarsson)

Á fremra saurblaði 1r er vísa: Þessi blöð af hendi mér

Fremra saurblað 2r: Hér skrifast annálabrot er kallast Hungur-vak[a] [titilsíða með annarri hendi Undir titli stendur ártalið 1847, ef til vill skr.ifað með annarri hendi en titilsíðan]

Band

Skinn á kili og hornum, kjölur þrykktur. Tréspjöld klædd með skinni úr eldra bandi, gullþrykktu

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1820-1830?]
Ferill

ÍB 188-205 4to kemur frá Jóni Borgfirðingi.

Eigandi handrits: Jón Pálsson á Hlíðarseli í Fellum í Norður-Múlasýslu (fremra og aftara spjaldblað, fremra saurblað 1r-1v og 2r-2v, 24v)

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 14. ágúst 2009 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 5. maí 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999

gömul viðgerð

Myndir af handritinu
53 spóla negativ 35 mm
Lýsigögn
×

Lýsigögn