Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 43 fol

Sögusafn ; Ísland, 1750

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-12v)
Saga af Hálfdáni Eysteinssyni
2 (13r-38v)
Saga af Göngu-Hrólfi
3 (39r-48v)
Saga af Án bogsveigi
4 (49r-54v)
Saga af Þorsteini bæjarmagn
5 (55r-57v)
Saga af Eiríki víðförla
6 (58r-69v)
Saga af Sturlaugi starfsama
7 (70r-74v)
Saga af Hrómundi Greipssyni
8 (75r-80v)
Saga af Hálfi og Hálfsrekkum
9 (81r-102r)
Saga af Þorsteini Víkingssyni
10 (101v-114v)
Saga af Friðþjófi frækna

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
v + 114 + vi blöð (290-295 mm x 175-195 mm)
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 258 (49r)

Umbrot
Griporð á blöðum 13r-114r.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur; Skrifarar:

I. 1r-48v, 55r-114v: Óþekkur skrifari, fljótaskrift.

II. 49r-54v: Óþekkur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Skreyttir upphafsstafir: 13r, 39r, 49r, 55v, 58r, 70v, 75r, 81r og 102v.

Bókahnútar: 38v og 54v.

Band

Band frá árunum 1908-1942 (300 mm x 190 mm x 35 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd svörtum hömruðum pappír. Kjölur og horn klædd brúnu skinni.

Leður á hornum örlítið slitið.

Límmiði á kili.

Runólfur Guðjónsson batt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland um 1750.
Ferill

Handritið fékk félagið frá sr. Pétri Jónssyni á Kálfatjörn (sbr. Skýrslur og reikninga Bókmenntafélagsins 1858-1859, bls. XIV).

Aðföng

Sr. Pétur Jónsson, 1858-1859.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir nýskráði 24.-25. maí 2011.
Viðgerðarsaga

Athugað fyrir myndatöku maí 2011.

Myndað í maí 2011.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í maí 2011.

Lýsigögn
×

Lýsigögn