„Hér byrjar söguna af Búa Íslendingi hinum einráða“
„Helgi bjólan son Ketils flatnefs …“
„… er mikil ætt frá honum komin.“
Og lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.
„Hér eftir byrjast sagan af Jökli Búasyni.“
„Jökli þótti nú svo illt verk sitt …“
„… og lýkur svo hér frá Jökli að segja.“
„Anno 1661, þann 4.ða nóvember.“
Blað 22v var upprunalega autt en á það hefur verið ritað með yngri hendi, m.a. Hallur Bjarnason á þessa bók með réttu
Þrjú kver.
Band er frá mars 1977. Strigi er á kili og hornum, strigaklæðning. Kver eru saumuð á móttök.
Seðillinn er gamalt umslag. Á versó-síðu þess er hluti af heimilisfangi og leifar af rauðu innsigli: „Þurydi Arnadotter Minne Elskulegri Velgiórda systur ad Sæboli ä Jngialldssandi er þetta Blad af astseme allkiærlega Thilteyknad(?) og Sentt“
Handritið er skrifað á Íslandi árið 1661 (á blaði 22r er dagsetningin 4. nóvember 1661).
Í handritinu voru áður ennfremur Snjáskvæði, Kötludraumur, annar partur Eddu, Grænlands saga Björns Jónssonar á Skarðsá og fleira (sjá seðil).
Hallur Bjarnarson átti handritið 1665 (sjá blað 22v), en Árni Magnússon fékk það að láni hjá mag. Birni og segir það úr kveri Halldórs Þorbergssonar (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. júní 1977.
Viðgert og innbundið á verkstæði Birgitte Dall í mars 1977. Eldra pappaband fylgir með handritinu í öskju.