Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 945 4to

Gull-Þóris saga ; Ísland, 1832

Titilsíða

Gull-Þóris saga (viðbætir […])

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-5v)
Gull-Þóris saga
Upphaf

Í miðjum 10. kapitula vantar í mörg exemplaría …

Niðurlag

… Ragnars eins og Ragnar fyrirsagði honum og hér var áður sagt.

Athugasemd

Eyðufyllingar í Gull-Þóris sögu: Auk styttri eyðufyllinga í kafla 10 og 17 eru tvær útgáfur af niðurlagi sögunnar, annar ófullgerður.

2 (6r-6v)
Gull-Þóris saga
Titill í handriti

Nockur nomina propria úr Gull-Þóris sögu

Upphaf

Grímkellsstaðir eru fyrir utan Gröf á Hallsteinsnesi …

Niðurlag

… svo hann numdi þar land.

Skrifaraklausa

Þessar athugasemdir eru skrifaðar eftir sr. Birni Hjálmarssyni í Tröllatungu af BBenediktsson árið 1832.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 6 blöð + ii (201 mm x 160 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking 1-11 (bls. 12 er ómerkt).

Kveraskipan

Eitt kver. Saurblöð tilheyra kverinu.

  • Kver I: Fremri saurblöð (2) + blöð 1-6 + aftari saurblöð (2); 5 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (175-180 mm x 145 mm).
  • Línufjöldi ca 27-30.
  • Leturflötur er afmarkaður við innri og ytri spássíu með blýanti.

Skrifarar og skrift

Með hendi Brynjólfs Benedictsen. Snarhönd en fljótaskriftareinkennum bregður þó fyrir, s.s. e-i og r-i á blaði 1r og víðar.

Skreytingar

Heiti sögunnar er ritað á saurblað 2r Gull-Þóris saga (viðbætir [..]).

Band

Band (215 null x 183 null x 6 null) er frá árunum 1880-1920.

Strigi er á kili og hornum, pappírsklæðning. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

>Handritið er skrifað á Íslandi en skrifarinn Brynjólfur Benedictsen ársetur uppskrift sína árið 1832.

Ferill

Handritið kom frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.

Á titilsíðu (öðru saurblaði) stendur fyrir ofan titil Bogi Benediktsson á Staðarfelli (1846).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. júlí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • VH skráði handritið 5. júní 2009,
  •  ÞS skráði 9. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. ágúst 1909. Katalog II> ,bls. 271 (nr. 2077).

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Gull-Þóris saga eller Þorskfirðinga saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Umfang: 26
Lýsigögn
×

Lýsigögn