Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 720 a III 4to

Kvæði ; Ísland, 1500-1599

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-1r)
Lögbrotsvísur
Upphaf

heilög er sú hjálpin mest

Niðurlag

hér skal fræðið falla. Amen.

Athugasemd

Vantar framan af.

Heiti kvæðisins kemur fram í því sjálfu.

Kvæði þetta er t.d. prentað í  Vísnabók Guðbrands, 2000s. 241-245.

2 (1r-1v)
Boðorðavísur
Titill í handriti

Boðorða vísur

Upphaf

Sjálfur Guð fyrir sonar síns náð

Niðurlag

góðan hjálpar kjarna / svo vel oooooooooo

Athugasemd

Vantar aftan af.

Kvæði þetta er t.d. prentað í  Vísnabók Guðbrands, 2000s. 245-248.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
1 blað (156 mm x 131 mm).
Kveraskipan

Stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 147 mm x 108 mm, en skorið hefur verið neðan af handriti.
  • Línufjöldi er 35-36.
  • Stórir stafir sem lenda í upphafi línu dregnir út úr leturfleti.

Ástand

  • Brot.
  • Stór blettur á 1r, þannig að texti er örlítið skertur.
  • Skorið hefur verið af hliðum handrits.
  • Af saumgötum og brotum í blaðinu má ráða að það hefur einhvern tíma verið notað í band.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, blendingsskrift.

Skreytingar

Bl. 1r: Pennaflúraður upphafsstafur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Bl. 1r: III, sem tákn um að handritið sé þriðji hluti í AM 720 a I-XI. Á 1v stendur einnig III, en strikað yfir það.

Band

Band frá ágúst 1967 (244 mm x 248 mm x 2 mm). Pappakápa með línkili. Blaðið er límt á móttak. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 720 a I-XI 4to.

Þegar handritið var bundið 1967 var blaðinu af vangá snúið öfugt, þannig að versóhliðin snýr fram en rektóhliðin aftur.

Fylgigögn

Í öskjunni liggur laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 16. aldar ( Katalog II 1894:145 ). Jón Þorkelsson telur það hins vegar skrifað 1580 ( 1888:101 ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1967.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Vísnabók Guðbrands
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Torfason, Kristján Eiríksson
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn