Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 554 b 4to

Króka-Refs saga ; Ísland, 1675-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-17v)
Króka-Refs saga
Titill í handriti

Hér skrifast saga af Króka-Ref

Upphaf

Á dögum Hákonar kóngs Aðalsteinsfóstra …

Niðurlag

… og er margt göfugra manna frá honum komið …

Baktitill

Og lúkum vér hér sögu af Króka-Ref og öllum hans frægðarverkum.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
17 blöð (205 mm x 163 mm).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-17.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-17, 4 tvinn og stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165-170 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er 27-30.
  • Kaflatal sums staðar á spássíum.
  • Griporð.

Ástand

Dökkur blettur og gat ofarlega á blaði 6.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Titill sögunnar er feitletraður og upphafsstafur hans lítillega pennaflúraður (bl. 1r).

Upphafsstafir flestra kafla eru feitletraðir og pennaflúraðir. Stærstir eru á bl. 1r, 14r, 15r, 16v.

Bókahnútar við sögulok (bl. 17v).

Örlítið pennaflúr undir griporðum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Mislöng strik langsum niður ytri spássíu margra blaða og einnig strikað undir orð og setningar víða, ef til vill með hendi skrifara.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (209 mm x 167 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í  Katalog I , bls. 700.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P58. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 31. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. september 1887(sjá Katalog I 1889:700 (nr. 1361) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Athugasemdir við bók Más Jónssonar um Árna Magnússon, Gripla
Umfang: 11
Lýsigögn
×

Lýsigögn