Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 512 4to

Víglundar saga ; Danmörk, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-45v (bls. 1-90))
Víglundar saga
Titill í handriti

Víglundar saga

Vensl

Handritið er skrifað eftir AM 160 fol..

Upphaf

Haraldur hinn hárfagri var son Hálfdanar svarta …

Niðurlag

… Sannast það hér, að enginn veit sína ævina fyrr en öll er.

Baktitill

Endast hér nú þessi saga af Víglundi hinum væna.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 48 + i blöð (210-212 mm x 160-162 mm). Blöð 46-48 eru auð auk neðri helmings blaðs 45v.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-90. Öftustu blöðin eru ótölusett.

Kveraskipan

Sex kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 41-48, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155-160 mm x 120 mm.
  • Línufjöldi er 17-18.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Torfasonar, fljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 170 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, með brotum af leiðbeiningum fyrir presta um fæðandi konur.

Fylgigögn

Fastur seðill (213 mm x 156 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna handritsins. Var upprunalega saurblað: Ritad epter hendi Sr Jons i Villingahollte ur bok tilheyrande hans hój Excellence Hr Ulr. Chr. Güldenlewe.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 671.

Samkvæmt AM 477 fol. átti að vera hér fyrir framan Tabb. Geneal., en er þar ekki lengur.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júlí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS jók við skv. reglum TEI P5 23. febrúar 2009 og síðar.
  • ÓB skráði 3. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. júní 1887 (sjá Katalog I 1889:671 (nr. 1284) .

    GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn