„Eyrbyggja saga“
„Ketill flatnefur hét einn ágætur hersir …“
„… Og voru þau bein öll grafin niðri þar sem nú stendur kirkjan.“
Og lýkur þar sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga.
Skrifað eftir Vatnshyrnu (Codex Resenianus) (sbr. athugasemd á fremsta saurblaði).
Blaðsíðumerking 1-187 (þar með talin 4 auð blöð aftast); fimm auðar og ómerktar blaðsíður til viðbótar tilheyra síðasta kveri.
Tólf kver.
Texti sést sumstaðar í gegn, s.s. á blöðum 56r-60v.
Handritið er að mestu skrifað með hendi Ásgeirs Jónssonar; kansellískrift.
Blöð 33.2r-44.5v og vísur sögunnar eru með hendi Árna Magnússonar (sbr. Giovanni Verri; óbirt rannsókn) ; árfljótaskrift.
Band (217 null x 173 null x 22 null) er frá 1700-1730. Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn fyrir Árna Magnússon. Talið er að forrit skrifarans hafi verið Vatnshyrna (Codex Resenianus) (sbr. athugasemd á fremsta saurblaði). Uppskriftin er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) en til um 1700 í Katalog I bls. 643.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. desember 1978.
VH skráði handritið 30. mars 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 29. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 18. maí 1887. Katalog I; bls. 643 (nr. 1219).
Bundið í Kaupmannahöfn á árunum 1700-1730.