Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 420 c 4to

Skálholtsannáll hinn nýi ; Ísland, 1575-1600

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-33r)
Skálholtsannáll hinn nýi
Athugasemd

Vantar framan af.

Nær yfir árin 70-1430.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
33 blöð ().
Umbrot

Tvídálka.

Ástand

  • Vantar framan af handriti. Árni Magnússon fann blað sem hann sagði úr þessu handrit, lagði það hér með, en það er nú glatað (sbr. seðil og AM 435 a 4to).
  • Bl. 28 götótt og mjög fúið.
  • Bl. 33v er illlæsilegt.

Skrifarar og skrift

Ein hönd (bl. 34v með annarri hendi frá því um 1600).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Um 1600 hefur e-r skrifað á neðri spássíu á bl. 27v: Wigfüs Jon sonar | Hannd.
  • Bl. 33v upprunalega autt, en á því eru nú annálsgreinar.

Band

Band frá mars 1973.  

Fylgigögn

Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.

  • Seðill 1 (162 mm x 105 mm): Þessir annálar hafa 00 alls fyrir löngu heyrt Skálholtdómkirkju til. Það eina blað sem hér innan í liggur, hefi ég sérílagi fengið á Íslandi og lagði ég það hér samanvið með því ég sá að það hér til heyrði.
  • Seðill 2 (127 mm x 102 mm): Þessi nýi annáll er manifeste og absqve omni dubio ritaður eftir þeim eldra er magister Brynjólfur í sinni collectione annálum kallar Lögmannsannál. Vide inter alia annum 448. 685. En er ærið rangt ritaður eftir þeim sama, af ólærðum viðvaningi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til c1575-1600, en til 16. aldar í  Katalog I , bls. 626.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Vídalín biskupi, en þá hafði það lengi legið í Skálholti og eigendasaga þess óviss (sjá seðil og AM 435 a 4to).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. apríl 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 626 (nr. 1187). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 23. nóvember 2001.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1973. Eldra band fylgdi ekki.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 7. júlí 1972.

Notaskrá

Höfundur: Eiríkur Þormóðsson
Titill: Misskilið orð í AM 420 b 4to, Steffánsfærsla fengin Stefáni Karlssyni fimmtugum
Umfang: s. 16-18
Höfundur: Eiríkur Þormóðsson, Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Oddaannálar og Oddverjaannáll,
Umfang: 59
Höfundur: Storm, Gustav
Titill: Islandske annaler indtil 1578
Höfundur: Guðrún Þórhallsdóttir
Titill: Tvíræða orðasambandið að ósekju, Orð og tunga
Umfang: 18
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Athugasemdir við bók Más Jónssonar um Árna Magnússon, Gripla
Umfang: 11
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 420 c 4to
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn