Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 c fol.

Flóamanna saga ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-8r)
Flóamanna saga
Titill í handriti

Saga af nokkrum landnámsmönnum sérdeilis Þorgils Þórðarsyni kölluðum orrabeinsfóstra og nokkrum Flóamönnum.

Upphaf

Haraldur kóngur Gullskeggur réð fyrir Sogni …

Niðurlag

… móður Steinunnar, móður Herdísar, móður Bjarnar, föður Gissurar galla, föður Hákonar, föður Jóns.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Bókstafur A í tvöföldum hring // Ekkert mótmerki (2, 4, 6, 8).

Blaðfjöldi
8 + i blöð (313 mm x 194 mm). Blað 8v hefur upphaflega verið autt (sjá Spássíugreinar og aðrar viðbætur.)
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með dökku bleki 1-8.

Kveraskipan

4 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn)
  • II: bl. 1-8 (4 tvinn: 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: bl. 9-11 (3 brot)
  • IV: spjaldblað (eitt blað)

Umbrot

  • Einn dálkur.
  • Leturflötur er ca 275-280 mm x 155-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 60-64.

Ástand

  • Neðri helmingur hefur verið skorinn af blaði 8 (neðan við niðurlag sögunnar) og pappír úr umslagi límdur á í staðinn.

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Blendingsskrift.

Skreytingar

  • Við lok uppskriftar er einhvers konar bókahnútsígildi (líkt og tvö öfug P, belgir blekfylltir). Þetta tákn er einnig í fleiri handritum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Mannanöfn á blaði 8v. Þar á meðal er nafnið Daði Jónsson. Nöfnin Jón Halldórsson og Margrét Pétursdóttir má m.a. lesa á umslagspappírsbútnum sem límdur var neðan við blað 8.

Band

Pappaband (313 mm x 200 mm x 4 mm) er frá 1772-1780.

Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 133.

Handritið var áður hluti af stærri bók seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 163 k fol., AM 163 i fol., AM 129 fol. og AM 5 fol..

Ferill

Árni Magnússon fékk bókina sem blöðin voru tekin úr frá Jóni Daðasyni (sbr. seðil).

Árið 1730 var handritið hluti af No. 164 in fol. (sbr. AM 456 fol., 5r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. nóvember 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
BS bætti við upplýsingar um feril og uppruna 7. maí 2024. EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023. ÞÓS skráði vantsmerki 24. júní 2020.

VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 7. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010,

DKÞ grunnskráði 31. október 2001,

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1885 í Katalog I; bls. 133 (nr. 224).

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Flóamanna saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: 56
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn